Knattspyrnudeild Breiðabliks og Þróttur R. hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Guðmundar Friðrikssonar til Þróttar. Guðmundur hefur einnig gengið frá samningi við Þrótt. Guðmundur er 24 ára bakvörður og þekkir vel til Þróttar enda lék hann þar sem lánsmaður við góðan orðstýr sumarið 2016. Guðmundur hefur verið lengi hjá Blikum en hann kom til félagsins árið 2009 og var þá á yngra ári í 3.flokki. Hann lék 64 leiki fyrir meistaraflokk Breiðablik og skoraði 1 mark. Guðmundur á að baki 10 landsleiki með yngri landsliðum Ísland.

Við þökkum Guðmundi fyrir frábæran tíma hjá Blikum og óskum honum velfarnaðar á nýjum slóðum.