Aðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks 2018 verður haldinn þann 22. febrúar 2018 kl. 18:00 í stúkunni á Kópavogsvelli (Glersalnum).

Dagskrá

1. Kosning fundarstjóra og ritara
2. Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar
3. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til samþykktar
4. Kosning formanns
5. Kosning stjórnarmanna
6. Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál

Allir félagar knattspyrnudeildar sem eru 18 ára og eldri hafa rétt til að bjóða sig fram til setu í stjórn.
Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi 15. febrúar 2018. Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is

Stjórn Knattspyrnudeildar Breiðabliks