Breiðablik ætlar að ná Perlubikarnum til sín og þú getur hjálpað

Sunnudaginn 8. júlí milli kl. 13 og 17 ætlar Breiðablik að reyna ná til sín Perlubikarnum svokallaða. Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag og/eða sveita/bæjarfélag sem nær að perla sem flest armbönd til styrktar Krafti á tilteknum tíma.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta Blikar átt möguleika á að hreppa perlubikarinn. Í dag stendur metið í 2308 armböndum á fjórum tímum en það met settu Sunnlendingar 20. júní síðastliðinn. Nokkur félög eiga eftir að reyna við bikarinn og nú er bara að sjá hvaða íþróttafélag nær að perla sem mest á fjórum tímum. Það eru nágrannar okkar í HK sem hafa perlað flest armbönd af íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu, við Blikar ætlum svo sannarlega að veita þeim verðuga keppni.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum alla Blika; leikmenn og stuðningsmenn, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

Kraftur stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur var stofnað 1. október 1999. Félagið hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða þá sem þurfa á stuðningi að halda. Leitast er við að aðstoða þá ungu einstaklinga sem greinast með krabbamein og aðstandendur og miðla upplýsingum sem auðvelda þeim að takast á við sjúkdóminn. Félagið er fyrir fólk á aldrinum 18 – 40 ára en þar sem félagið er einnig fyrir aðstandendur er fólk á öllum aldri í félaginu.

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥