Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur samið við Errea á Íslandi um að lið félagsins leiki í búningum Errea keppnistímabilin 2019-2022. Samningurinn nær yfir búninga- æfinga- og frístundafatnað Breiðabliks. Nýir keppnisbúningar og aðrar vörur verða kynntir fljótlega og munu fara í sölu í desember árið 2018.  Það er Sport Company ehf. sem er umboðsaðili Errea á Íslandi og er með verslun í Bæjarlind 14-16 í Kópavogi og er einnig með öfluga vefverslun á www.errea.is.

Orri Hlöðversson formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks og

Þorvaldur Ólafsson framkvæmdastjóri Errea á Íslandi undirrita samninginn