Sýnum karakter ráðstefna 2. nóvember

Jákvæð íþróttamenning

Ráðstefnan verður haldin í Háskólanum í Reykjavík klukkan 13:00 til 16:00.

Þema ráðstefnunnar í ár verður jákvæð íþróttamenning. Við fáum að heyra ólíkar raddir og mismunandi leiðir til þess að byggja upp jákvæða menningu í íþróttastarfinu, hvort sem það er hjá einstaka flokki eða öllu félaginu. Áherslan verður á félagslegar og sálrænar hliðar íþróttanna. Boðið verður uppá praktískar leiðir, verkfæri, hugmyndafræði, aðferðafræði og vísindi. Vonandi eitthvað fyrir alla áhugasama um uppbyggjandi þjálfun barna og ungmenna í íþróttum.

Miðinn á ráðstefnuna kostar 2500 kr

 

Sýnum karkater vinnustofa 3. – 4. nóvember

Þjálfun sálrænna þátta The 5C´s með skilvirkum aðferðum.

Íþróttasálfræðingarnir Dr. Chris Harwood , Loughborough University og Dr. Karl Steptoe, Leicester City FC academy.

Vinnustofan er hugsuð fyrir yfirþjálfara eða þjálfara með mikla reynslu, alveg óháð íþróttagrein. Þrátt fyrir að þeir hafi unnið hugmyndafræðina fyrir knattspyrnu þá er einfalt að yfirfæra hana yfir á aðrar  íþróttagreinar.

Markmiðið er að kynna hugmyndafræðina á bakvið the 5Cs og með hvaða aðferðum er hægt að koma þeim í framkvæmd með skipulögðum hætti á æfingum og í keppni. Eitt af lykilhlutverkum þjálfara er að skapa umhverfi þar sem iðkendur fá tækifæri til að vaxa sem heilsteyptir einstaklingar samhliða því að taka framförum í sinni íþróttagrein. Fyrri hlutinn verður í höfuðstöðvum KSÍ en seinnihlutinn á sunnudeginum þá verður verkleg kennsla í Egilshöll.

Miðinn á Vinnustofuna kostar 15.000 kr. – innifalið er, ráðstefnan, vinnustofan, bókin og hádegismatur á laugardeginum.

Hægt er að nálgast miða hér: https://umfi.felog.is/verslun