Kæru foreldrar og iðkendur.

Í vikunni hefst sala á miðum í stórglæsilegu Jólahappdrætti Breiðabliks. Um er að ræða stóra fjáröflun fyrir félagið og nauðsynlegt að þjálfarar, iðkendur og foreldrar leggist á eitt svo vel takist til. Við munum á næstu dögum dreifa umslögum með miðum til iðkenda, en hver iðkandi fær að jafnaði 10 miða sem hann getur selt mömmu, pabba, frænda, frænku, ömmu, afa, vinafólks og nágranna eða hvers sem er.

Iðkandi fær 500 krónur af seldum miða og getur því haft vel upp úr krafsinu.

Iðkendum er frjálst að hjálpast að með söluna og eigi einhver í vandræðum með að selja miða skal ekki hika við að leita aðstoðar hjá þjálfara.

Salan fer fram á tímabilinu 4. desember – 9. janúar. Til að tryggja að allir miðar fari í sölu er nauðsynlegt að skila óseldum miðum eigi síðar en 10. janúar. Þegar ágóða af seldu miðum sem og óseldum miðum er skilað er nauðsynlegt að taka fram hvaða iðkandi er að skila og hvaða flokki hann tilheyrir.

Hagnýtar upplýsingar
• Verð hvers miða er 1.500 krónu (iðkandi fær 500 krónur af hverjum seldum miða)
• Upplag er 12000 miðar og eingöngu dregið úr seldum miðum
• Heildarverðmæti vinninga er 2.972.806kr.
• Sölutímabil er 4. desember til 9. janúar.
• 10. janúar er síðasti dagur til að skila inn óseldum miðum og ágóða af sölu til íþróttafulltrúa. Það má að sjálfsögðu skila fyrr inn ef vel gengur og fá fleiri miða.
• Mikilvægt er að iðkendur skili inn óseldum miðum ef ekki tekst að selja alla miða, því fyrr sem það gerist er þeim mun betra svo hægt sé að koma þeim aftur í umferð.
• Dregið 18. janúar 2019
• Vinningsnúmer munu birtast á www.breidablik.is og Facebook síðu Breiðabliks
• Vinninga skal vitjað á skrifstofu Breiðabliks innan tveggja mánaða að útdrætti loknum.

Dæmi: Iðkandi fær 10 miða til sölu og selur þá alla. Iðkandi skilar 10.000 krónum til íþróttafulltrúa og heldur eftir 5.000 krónum. Ef iðkandi hefur áhuga á að selja fleiri miða er hægt að nálgast fleiri miða hjá íþróttafulltrúa Breiðabliks á skrifstofunni á annarri hæð.

Allar nánari upplýsingar veita Halldór Halldórsson, íþróttafulltrúi Breiðabliks, halldor@breidablik.is og Sigurður Hlíðar verkefnastjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks, sigurdur@breidablik.is

Með von um jákvæð viðbrögð og góða sölu