Breiðablik og Hjálparsveit Skáta í Kópavogi eru í samstarfi um flugeldasölu og hægt er að styrkja bæði félög með því að kaupa flugeldaávísanir í afgreiðslu Smárans.

Kaupendur velja þá deild innan Breiðabliks sem þeir hugsa sér að styrkja og í boði eru bæði 5.000 kr og 10.000 kr ávísanir sem gilda á eftirtöldum sölustöðum Hjálparsveitarinnar:
– Bakkabraut 4: Björgunarmiðstöðin við Kópavogshöfn (Stór sölustaður)
– Dalveg 6-8: Í húsnæði Kraftvéla (Stór sölustaður)
– Nýbýlavegi 10: Rétt hjá Bónus Nýbýlavegi
– Versölum 5: Við Salalaug
– Vallakór 4: Við Krónuna í Kórahverfi

Áramótabrenna
Hin árlega áramótabrenna Kópavogs verður við Smárahvammsvöll fyrir neðan Digransekirkju á sama stað og undanfarin ár á gamlárskvöld.
– Kveikt verður í brennunni kl. 20:30.
– Flugeldasýning Hjálparsveitar skáta hefst kl. 21:10
– Bílastæði eru við Digraneskirkju, á Smáratorgi og við Smáralind.
– Einnig eru stæði við Fífuna, Smárann og við Fífuhvamm.