Nú á dögunum var endurnýjuðu N1 og knattspyrnudeild Breiðabliks samstarfssamnings sinn til næstu fjögurra ára en N1 hefur verið dyggur stuðningsaðili deildarinnar undarfarin ár. Um leið bættist Krónan í hóp samstarfsaðila knattspyrnudeildar og munu búningar félagsins bera merki Krónunnar. Stuðningur N1 og Krónunnar skiptir knattspyrnudeildina miklu máli og styrkir áfram öflugt uppeldis- og afreksstarf knattspyrnudeildar sem og að styðja við meistaraflokka félagsins í efstu deild karla og kvenna. Það voru þau Sigmar Ingi Sigurðarson Markaðs- og viðburðastjóri Breiðabliks og Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri Breiðabliks sem undirrituðu samninginn fyrir hönd Breiðabliks og Eggert Þór Kristófersson forstjóri Festi og Þyrí Dröfn Konráðsdóttir markaðsstjóri N1 sem undirrituðu samninginn fyrir hönd N1 og Krónunnar.