fbpx

Mótsstjórn Símamótsins, ásamt Barna- og Unglingaráði Breiðabliks, þakkar öllum þeim sem tóku þátt og aðstandendum þeirra á Símamótinu 2019 fyrir frábæra daga.
Þeir hundruðir sjálfboðaliða sem gerðu mótið að veruleika eiga heiður skilið fyrir óeigingjarnt framlag en án þeirra gætum við ekki gert þetta að veruleika.
Við þökkum Kópavogsbæ, starfsmönnum Breiðabliks og að sjálfsögðu bakhjarli okkar, Símanum, fyrir þeirra stuðning.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á næsta ári.