Jón Erik Sigurðsson, 15 ára skíðamaður úr Breiðablik vann til gull­verðlauna á stóru alþjóðlegu skíðamóti í lok janúar. Mótið, sem ber heitið Trofeu Borrufa, er haldið á vegum Alþjóða Skíðasambandsins og fer fram í Andorra ár hvert. Þetta er eitt af stærstu mótunum sem haldið er í þess­um ald­urs­flokki. Alls kepptu 69 drengir í hans flokki.

Á mánudeginum var keppt í svigi og þar gerði Jón Erik góðar ferðir, náði öðrum besta tím­an­um í fyrri ferð og þriðja besta tímanum í seinni ferð og vann til gullverðlauna samanlagt.

Á þriðjudeginum var keppt í stór­svigi og var Jón Erik þrettándi eft­ir fyrri ferð en hlekktist á í seinni ferð.

Á miðvikudeginum var keppt í AC (Alpine Compined), þar sem farin er ein ferð i risasvigi og ein ferð í svigi. Jón Erik var í sjötta sæti í risasviginu og þriðja sæti í sviginu og náði 4. sæti samanlagt og var á 1,02 sek á eft­ir fyrsta manni.

Á fimmtudeginu var svo keppt í risasvigi þar sem Jón Erik lenti í 9. sæti og var á 2,01 sek á eft­ir fyrsta manni.

Jón Erik er annar Íslend­ing­ur­inn til að vinna til gullverðlauna á alþjóðlegu barna- og ung­linga­móti á veg­um Alþjóða skíðasam­bands­ins.

Um helgina fór svo fram fyrsta bikarmót vetrarins á Íslandi þar Jón Erik vann bæði til gullverðlauna í svigi og stórsvigi.

Jón Erik mun keppa á alþjóð­leg­um FIS-mót­um næsta vet­ur.