Að gefnu tilefni.

Engar skipulagðar æfingar eru á vegum deilda Breiðabliks og liggur allt starf niðri. Hins vegar eru iðkendur í deildum hvattir til að sinna sínum heimaæfingum og einstaklingsprógrammi sem þjálfarar hafa útbúið enda mikilvægt að halda áfram að stunda holla og góða hreyfingu eins og aðilar hafa hvatt til.

Margir hafa nýtt sér gervigrasvelli og sparkvelli bæjarins fyrir þessar heimaæfingar og mætt þangað ásamt foreldrum og jafnvel vinum og félögum.

Hins vegar er nú þannig komið fyrir að fjöldi iðkenda sem sækir á þessa velli er orðinn það mikill að bærinn hefur ákveðið að loka þessum völlum fyrir almenningi þar sem því verður við komið og ítreka tilmæli almannavarna og sóttvarnarlæknis.

Við hjá Breiðablik tökum þessu ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu mjög alvarlega og fylgjum þeim fyrirmælum sem gefin hafa verið út.
Þá skal það einnig tekið fram að Breiðablik hefur enga aðvörðun fengið frá yfirvöldum.

Virðingarfyllst,

Eysteinn Pétur Lárusson
Framkvæmdastjóri Breiðabliks