Kraftlyftingadeild Breiðabliks hefur í samráði við framkvæmdastjóra Breiðabliks, Ungmennafélags, hr. Kristján Jónatansson, og framkvæmdastýru Íþróttahúss Breiðabliks í Smáranum, frú Ástu B. Gunnlaugsdóttur, sem er með þeim hætti að gjaldkeri Kraftlyftingadeildar, fr. Elín María Gubjartsdóttir, afhentir ofangreindum, nafngreindum, aðilum þann 5. hvers mánaðar nafnalista yfir þá félagsmenn Kraftlyftingadeildar er greitt hafa æfingagjöld og eru að öðru leyti skuldlausir sem starfsmenn í afgreiðslu Smárans munu sjá um að fylgjast með varðandi aðgang að Bráðabirgðaðstöðu Kraftlyftingadeildar.
Þeim aðilum sem ekki hafa greitt æfingagjöld og eru ekki á tilgreindum nafnalista verður vísað frá og er algerlega óheimilt að æfa þar til þeir hafa gert um æfingjöld fyrirfram fyrir hvern æfingamánuð.
Þeir sem ekki hafa gert upp skuld á æfingagjöldum hjá Kraftlyftingadeild Breiðabliks fyrir föstudaginn 9. júlí 2010 er óheimilt að viðlagðri ábyrgð að lögum að æfa í Bráðabirgðaaðstöðu Kraftlyftingadeildar í Smáranum.

Mánaðargjaldið er einungis kr. 2000 og greiðist fyrirfram fyrir hvern æfingamánuð þar til annað tilkynnist hér á vefsíðu Kraftlyftingadeildar.
Greiða skal inn á bankareikning Kraftlyftingadeildar Breiðabliks:
Bankareikningur Kraftlyftingadeildar Breiðabliks, Landsbanka Íslands :
Bankareikningur nr. 0130-26-090909
kt. 530309-0100
Sjá einnig „Æfingagjöld” (hér á vefsíðu) - veflykill:
Kraftlyftingadeild Breiðabliks þakkar framkvæmdastjóra Breiðabliks, Ungmennafélags, hr.Kristján Jónatanssyni, og framkvæmdastýru Íþróttahúss Breiðabliks í Smáranum, frú Ástu B. Gunnlaugsdóttur, sem og starfsmönnum í afgreiðslu Smárans og starfsmönnum félagsins að öðru leyti fyrir samstarfið fram að þessu og fyrir komandi störf í þágu Kraftlyftingadeildar.
Kraftlyftingadeild er að undirbúa flutning í framtíðakraftlyftingaþjálfunaraðstöðu og er stöðugt að reyna að efla kraftþjálfunartækjakost deildarinnar svo og að greiða almennan rekstrarkostnað og munar um hverja krónu til þeirra hugsjónaverkefna! ![]()
Kraftlyftingadeild Breiðabliks



