Í nýlegum fræðslupistli á vef Lyfjaeftirlits Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands [dagsettum þann 23. júní 2010 – veflykill: http://www.isi.is/pages/lyfjaeftirlit/ ] er vísað á næringarfræðivísindagrein Evu Blomstrant dósents í lífeðlisfræði við Sænska íþróttaháskólann (GIH), „Yfirlit yfir þekkingarvísindi: Matarræðis- og næringarfræði innan íþróttanna” („Kunskapsöversikt: Kost- och näringslära inom idrotten”) sem hún vann samkvæmt beiðni Sænska ríkisíþróttasambandsins [Sveriges Riksidrottsförbund] – sjá eftirfarandi veflykil [pdf-skjal]:
http://www.rf.se/ImageVault/Images/id_2568/ImageVaultHandler.aspx
Sjá einkum á bls. 12-13 í ofangreindri vísindagrein „ Styrketräning” (Kraftþjálfun), svo og aftur á bls. 23:„ Styrketräning” (Kraftþjálfun) í sömu grein.
►Það er nokkuð í samræmi við aðrar slíkar vísindagreindar um íþróttanæringarfræði að ekki er nægjanlega könnuð reynsla alvöru afreksíþróttamanna af notkun löglegra fæðubótarefni við þjálfun en miklar framfarar hafa orðið í framleiðslu löglegra fæðubótarefna á síðustu árum. Þessi grein Evu Blomstrant, dósents, er hins vegar þess virði fyrir kraftlyftingaíþróttaiðkendur að þeir ættu að reyna að lesa hana á sænsku þó að veikasti hluti greinarinnar sé sá hluti er víkur að kraftþjálfun og næringarfræði – en rétt væri að Lyfjaeftirlit ÍSÍ láti þýða þessa vísindagrein yfir á íslenska tungu.
![]()
Í eldri fræðigrein hér á vefsíðu Kraftlyftingadeildar er vikið að íþróttanæringarhollráðum Dr. Frederick C. Hatfield, PhD. (Dr. Squat) – eftirfarandi:
“Kraftlyftingamenn og aðrir kraftaíþróttamenn eiga að borða um tvo þriðju hluta af fæðu samsetta úr KOLVETNUM (flóknum) – um einn þriðja úr EGGJAHVÍTU (PRÓTEIN) – og um tíunda hluta úr FITU (hollri).
Dæmi um fæðu sem hefur að innihalda góð KOLVETNI: hafragrautur, kartöflur, grófkornabrauð, og fitusnautt jógúrt o.fl.
Dæmi um fæðu sem hefur að innihalda góða EGGJAHVÍTU (PRÓTEIN) eru fiskur (sérstaklega túnfiskur), magurt kinda- og nautakjöt, kjúklingar, kalkúnn, fitusnautt jógúrt og flest fitusnauð mjólkurvara o.fl.
Dæmi um góða FITU er öll ómettuð („mjúk”) fita – sjá – veflykil:”
http://www.lydheilsustod.is/deiglan/hollrad-fyrir-heilsuna/um-naeringu-og-holdafar/nr/2015
Sjá áfram ofangreinda eldri fræðigrein þar sem vikið er að næringarráðleggingum Dr. Frederick C. Hatfield, PhD. (Dr. Squat): “HARÐSTÆLTIR KRAFTLYFTINGÍÞRÓTTAMENN! Stigaárangur og staða á HEIMSLISTA IPF er það sem skiptir máli!” – veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6138&b=1
Sjá eldri fræðigrein þar sem vikið er að næringarfræði: „ Kraftlyftingaþjálfunaruppbygging dr. Frederick C. Hatfield, PhD. – “Dr. Squat” - Yfirlit!” – veflykill:
http://www.breidablik.is/frett.php?id_frett=6000&b=1
►Það stendur til hjá Kraftlyftingadeild Breiðabliks að fá háskólamenntaðan íþróttanæringarfræðing til þess að halda námskeið á vegum deildarinnar sem fyrst og þá þegar á komandi haustmánuðum.

Íþróttanæringarfræði skiptir miklu máli fyrir kraftlyftingaíþróttaiðkendur er stefna á alþjóðavettvang í íþrótt sinni og er samtvinnuð við beinar kraftlyftingaæfingar og endurheimtu líkamskrafta sem mynda órofa hring í lífsferli kraftlyftingaíþróttamanna.
Rétt næring fyrir æfingar skiptir miklu máli og þá einnig á æfingum þar sem rétt er að notfæra sér lögleg fæðubótarefni til þess að endurhlaða vöðva líkamans af æfingaorku.
Þá benda ný íþróttanæringarfræði á það að rétt er fyrir kraftlyftingaíþróttaiðkendur að næra sig rétt svo og strax eftir æfingar þar sem rétt blanda af fæðubótarefnum sem innihalda eggjahvítu, kolvetni, vítamín og snefilefni strax innan við hálfa klukkustund eftir að æfingu lýkur hraðar endurheimtu fyrir næstu kraftlyftingaæfingar.
Þannig geta kraftlyftingaíþróttaiðkendur æft betur og harðar - og náð fleiri hámarksæfingum fyrir tilstilli réttrar íþróttanæringar. 
*Athugasemdir:
Það er ástæða til þess að benda kraftlyftingamönnum sem nota ofangreind þjálfunarráð að fara varlega og leita ráða hjá íþróttalæknum eða sérmenntuðum íþróttaþjálfurum varðandi það sem fram kemur hér – einkum varðandi það að fyrirbyggja æfingameiðsli.
Sjá ennfremur þrýstiborða „Þjálfunarfræði í kraftlyftingum” á vefsíðu Kraftlyftingadeildar Breiðabliks!
f.h. Kraftlyftingadeildar Breiðabliks
Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, ritari og vefstjóri
Höfundur hefur stundað kraftlyftingaþjálfun um áratugaskeið og þjálfað marga af bestu íþróttamönnum Íslands.
Höfundur stóð fyrir og stundaði þjálfunarnám tvívegis á kraftþjálfunarnámskeiðum á vegum forvera Kraftlyftingasambands Íslands ÍSÍ (KRAFT-ÍSÍ)) og hins heimsfræga kraftaþjálfara dr. Frederick C. Hatfield, PhD. hér á landi á níunda áratug 20. aldar.
Hinn heimsfrægi fyrrverandi ritstjóri og prófessor, dr. Frederick C. Hatfield, PhD., er nefndur er í alþjóðlegum kraftaheimi „Dr. Squat”.
Birt sem handrit og drög: 2010 Copyright ⓒ Halldór Eiríkur S. Jónhildarson (sign.). All Rights Reserved.



