Það er rétt að ítreka það að þeir kraftlyftingaíþróttaiðkendur sem stunda æfingar í „Bráðabirgðaaðstöðu” Kraftlyftingadeildar Breiðabliks verða að ganga vel frá kraftlyftingastöngum og lóðum svo og öðrum kraftþjálfunartækjum eftir æfingar.
Það þarf að taka alveg af kraftlyftingalyftingastöngum og setja þær út í horn – eða skilja þær eftir á uppistöðum – án lóða.
Þá getur þurft að hreinsa magnesíu af gólfi eða kraftþjálfunartækjum.
Ef raskað hefur verið uppsetningu á kraftþjálfunartækum eða kraftlyftingastöngum ber að setja aftur í réttar (fyrri) skorður að æfingum loknum.
Lóð af stöngum ber að raða upp í þar til gerða lóðarakka - eða setja á viðeigandi uppistöður - og er óheimilt að skila eftir lóð á gólfi, kraftþjálfunarbekkjum eða tækjum og alls ekki á lyftingapöllum. Það sama gildir um lása eða spennur á kraftlyftingastangir - það er algerlega óheimilt að skilja eftir á tilgreindum stöðum - setja í lóðarakka eða á viðeigandi uppistöður.
Það er venjulega ekki við félagsmenn eða kraftlyftingaíþróttaiðkendur að sakast vegna frágangs á „Bráðabirgðaaðstöðu” heldur eru fremur íþróttaiðkendur annarra deilda Breiðabliks, ungmennafélags, kærulausir við frágang á kraftlyftingastöngum og kraftþjálfunartækum að æfingum loknum.
Kraftþjálfunarútbúnað eins og vafninga eða annað af því tagi er óheimilt að geyma í „Bráðabirgðaaðstöðu”.
Þá ber að setja tóm drykkjarföng (flöskur) og umbúðir utan af næringu í ruslafötur.
Bestu þakkir! ![]()
Kraftlyftingadeild Breiðabliks



