Svæðismeistaramót Norður- og Mið-Ameríku í bekkpressu svo og Bekkpressumót Íþróttaleika Karabískahafsins í bekkpressu 2010 – „The 8th Annual IPF/NAPF North American Powerlifting Championships and 1st IPF/NAPF Central American & Caribbean Games Powerlifting” fer fram laugardagskvöldið 31. júlí 2010 kl. 18:00 e.h. (bandarískur tími) í glæsiráðstefnusal Hyatt-hótelsins í Princeton, New Jersey, Bandaríkjum Norður-Ameríku sem er kl. 22:00 e.h. að íslenskum tíma.
Það er rétt að skoða reglulega neðangreint tölvuveflæðisjónvarp reglulega varðandi (mögulega) breytingu á tímaseðli svo og jafnfram tekur nokkurn tíma að hlaða útsendingarsíðu niður og hefja áhorf á þennan stórviðburð í alþjóðlegum kraftlyftingum.
►Hér er veflykill á beint tölvuveflæðisjónvarp frá Svæðismeistaramóti Norður- og Mið-Ameríku í bekkpressu svo og frá Bekkpressumóti Íþróttaleika Karabískahafsins í bekkpressu 2010 – sjá:
http://www.ustream.tv/channel/north-american-powerlifting-championships
Hér er um að ræða Svæðismeistaramót Norður- og Mið-Ameríku í bekkpressu svo og Bekkpressumót Íþróttaleika Karabískahafsins í bekkpressu 2010 sem einnig er boðsmót fyrir útvalda heimsklassa bekkpressukeppendur – og er von á heimsmetstilraunum og heimsmetum í karla- og kvennaflokkum!
Frægðarkeppendur (sérstaklega boðnir):
1. Anton Kraft – Danmörku - 60 kg. þfl.
2. Claudio Lora – Dómínanska lýðveldinu - 82.5kg. þfl.
3. Allan Santandrea – Guatemala – 125 kg
. þfl.
4. Jennifer Thompson – BNA* – 60 kg
. þfl.
5. Joe DeMatteo – BNA - 82.5 kg. þfl.
6. Dennis Cieri – BNA – 90 kg. þfl.
7. Tim Anderson – BNA 100 kg. þfl.
8. Rich Kruzsley – BNA – 110 kg. þfl.
9. John Bogart – BNA -125 kg. þfl.
10. Kevin Johnson – BNA – 125 + kg. þfl.
*[BNA=Bandaríki Norður-Ameríku]
►Hér er svo veflykill á vefsíðu Norður-Ameríska Svæðiskraftlyftingasambandsins – „North-American Powerlifting Federation (NAPF)” - sjá:
http://www.usapowerlifting.com/IPF-NorthAmerica/index.html
Þar vefsíðu NAPF birtast úrslit Svæðismeistaramóts Norður- og Mið-Ameríkumótinu í bekkpressu svo og Bekkpressumóts Íþróttaleika Karabískahafsins í bekkpressu 2010.

Það kann að vera að á næstu árum verði íslenskum löglegum kraftlyftingaíþróttaiðkendum Kraftlyftingasambands Íslands – sérsambands Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands verði boðið til þátttöku á Svæðismeistaramóti Norður- og Mið-Ameríku í bekkpressu svo og á Bekkpressumót Íþróttaleika Karabískahafsins í bekkpressu
Kraftlyftingadeild Breiðabliks hvetur félagsmenn deildarinnar og aðra kraftlyftingaíþróttaiðkendur og áhugmenn um löglegar alþjóðlegar kraftlyftingar til að kynna sér Svæðismeistaramót Norður- og Mið-Ameríku í bekkpressu í bekkpressu svo og Bekkpressumót Íþróttaleika Karabískahafsins í bekkpressu 2010 í gegnum flæðivefsjónvarp og með athugun á ofangreindri vefsíðu NAPF. ![]()
Kraftlyftingadeild Breiðabliks



