ÆFINGAGJÖLD.
Allir þeir sem æfa kraftlyftingar í kraftþjálfunaraðstöðu Breiðabliks og Kraftlyftingadeildar Breiðabliks í „Smáranum” verða að greiða mánaðaræfingagjöld fyrirfram fyrir sérhvern mánuð.
Mánaðargjaldið er kr. 2000.
Greiða skal inn á bankareikning Kraftlyftingadeildar Breiðabliks:
Bankareikningur Kraftlyftingadeildar Breiðabliks, Landsbanka Íslands :
Bankareikningur nr. 0130-26-090909
kt. 530309-0100
Æfingagjöld eru notuð sem undirstaða að framförum í kraftþjálfunaraðstöðu og kraftlyftingatækjabúnaði Kraftlyftingadeildar Breiðabliks en þegar hafa verið keypt ný kraftlyftingatæki og stendur til að láta lagfæra kraftlyftingatæki svo og að kaupa og láta smíða ný tæki.
Kraftlyftingastangir og lóð sem eru lögleg samkvæmt viðurkenningu Alþjóða kraftlyftingasambandsins - INTERNATIONAL POWERLIFTING FEDERATION (IPF) hafa hækkað gífurlega í verði eftir breytingar á gengi hinnar íslensku krónu eins og alkunnugt er.
Kraftlyftingadeild Breiðabliks stefnir á það að tækjabúnaður deildarinnar verði í heimsklassa - til þess þarf mjög mikla fjármuni.
Með fyrirfram þökkum og kraftablikakveðju!
Kraftlyftingadeild Breiðabliks



