fbpx

VEISLUSALIR

Veislur og fundir

Veitingasalur á efri hæð Smárans er með eldhúsi og afgreiðslueiningu (bar) inn í salnum. Þessi salur er rúmir 100 fm. og tekur 80-90 manna veislur eða fundi. Salurinn er stækkanlegur um aðra 100 fm. og tekur þá 190-220 manna veislur. Salurinn er búinn borðum og stólum og í eldhúsinu eru diskar og glös til að dekka stórar veislur.

Fyrir stærri veislur, 400-900 manna veislur, er hægt að leigja íþróttasalinn í Smáranum, hann er rúmir 1800 fm í heildarstærð, en skiptist með tjaldi í tvennt og síðan hægt að minnka enn frekar með drapperingum.

Allar frekari upplýsingar um leigu á sal er hægt að nálgast hjá Gauju í síma 591-1105 eða veislusalir@breidablik.is