Gunnar Snorrason var sæmdur gullmerki Breiðabliks á gamlársdag viðstöddum vinum og ættingjum.

Gunnar Snorrason fékk ungur mikinn áhuga á íþróttum og  ýmiss konar
líkamsrækt til dæmis stundaði hann Atlas-æfingakerfið af miklum móð um
fermingaraldurinn, eftir kennslubók. Gunnar var efnilegur Skautahlaupari
og æfði og keppti með Skautafélagi Reykjavíkur. Hann gekk til liðs við
frjálsíþróttadeild Breiðabliks 1957 og upp frá því æfði hann og keppti
fyrir félagið í í áratugi. Til dæmis keppti hann á öllum Landsmótum
U.M.F.Í frá 1965 til 1990 ávalt undir merkjum UMSK nema 1990 en þá
keppti hann fyrir Ungmennasamband norðurþingeyinga.  Gunni var öflugur
hlaupari sem var oftast í frmstu röð og hann vann til fjölmargra
verðlauna á ferlinum.

Gunni var ekki einungis öflugur íþróttamaður heldur var hann mjög
mikilvægur starfsmaður á mótum alla sína tíð. Ekki má gleyma starfi hans
hér í Smáranum og í Fífunni en það starf rækti hann af einstakri lipurð.

Gunnar Snorrason er sannur Gullbliki