Eins og við sögðum frá á þriðjudaginn þá fáum við einungis leyfi fyrir 200 áhorfendur, sökum covid.
 
Þessir fáu miðar fara allir til Blikaklúbbsmeðlima, fyrir utan nokkra miða sem fara til styrktaraðila.
 
Blikaklúbbsmeðlimir eru þeir sem eru í áskrift og styrkja starfið mánaðarlega.
 
Það er hinsvegar ekki of seint að skrá sig í klúbbinn!
Allar upplýsingar um klúbbinn, venjuleg árskort og annað slíkt er að finna í hlekknum hér að neðan:
 
Allir Blikaklúbbsmeðlimir ættu að hafa fengið tölvupóst varðandi forskráningu á leikinn á sunnudaginn.
Ef ekki, vinsamlegast hafið samband við klúbbinn.
Forskráningu fyrir þennan fyrsta heimaleik sumarsins lýkur klukkan 17:00 í dag, fimmtudag.
 
Þar sem Blikaklúbbsmeðlimir eru talsvert fleiri en 200 þá verður dregið úr öllum forskráningum.
Úrslit “happdrættisins” verða send í tölvupósti á klúbbsmeðlimi í hádeginu á morgun, föstudag.