Á morgun fimmtudag og einnig á föstudag(17. og 18. feb) er vetrarfrí hjá Kópavogsbæ.

Þar sem að allir skólar og frístundaheimili í bænum verða lokuð í þessa tvo daga þá verður enginn frístundaakstur.

Vert er að minna iðkendur okkar á að fylgjast sérstaklega vel með Sportabler þessa dagana þar sem æfingar gætu færst til eða fallið niður sökum vetrarfrísins.