fbpx

Æfingatafla – Rafíþróttir

Vorönn 2024 – skráning er hafin!

Æfingar hefjast 8. janúar og standa til 10. maí

Smelltu hér til að skrá iðkanda í rafíþróttir


Mix yngri (7-9 ára)
Mánudagar 14:30 – 16:00 / Föstudagar 14:30 – 16:00

Mix eldri (10-15 ára)
Þriðjudagar 16:00 – 17:30 / Fimmtudagar 16:00 – 17:30

Mix er hópur sem er EKKI spilað og æft í einum leik eins og í hinum hópunum.

Þá geta krakkarnir valið sér leik til að spila í á hverri æfingu.

Mix hópur leggur áherslu á að krakkarnir kynnist hver öðrum og spila í hópum. Hérna er minni fræðsla og lærdómur.

Fortnite (7-15 ára)
Þriðjudagar 16:00 – 17:30 / Fimmtudagar 16:00 – 17:30

Stelpuhópur (7-15 ára)
Þriðjudagar 14:30 – 16:00 / Föstudagar 14:30 – 16:00

Minecraft (7-15 ára)
Miðvikudagar 16:00 – 17:30 / Föstudagar 16:00 – 17:30

Rocket League (10-15 ára)
Þriðjudagar 16:00 – 17:30 / Fimmtudagar 16:00 – 17:30

Overwatch (10-15 ára) / Leyfi þarf frá forráðaaðila ef barn er yngra en 12 ára
Mánudagar 17:30 – 19:00 / Föstudagar 17:30 – 19:00

FPS (10-15 ára) / Leyfi þarf frá forráðaaðila þar sem leikir eru með 16 ára aldurstakmark
Þriðjudagar 17:30 – 19:00 / Föstudagar 17:30 – 19:00

*FPS inniheldur meðal annars eftirfarandi tölvuleiki: Counter Strike, Valorant, Call of Duty og fleiri.

Herkænska/RPG (10-15 ára)
Þriðjudagar 17:30 – 19:00 / Föstudagar 17:30 – 19:00

*Herkænska/RPG inniheldur meðal annars eftirfarandi tölvuleiki: League of Legends, Dota, RTS og fleiri.

Rafíþróttadeild Breiðabliks vill gefa börnum og unglingum í Kópavogi kost á markvissum æfingum og heilbrigðum spilaháttum þegar kemur að tölvuleikjum. Við viljum einnig styðja við virka samkeppni innanlands sem og að hjálpa iðkenndum að ná hámarksárangri. Þessu viljum við áorka með því að skapa félagslegt og stuðningsríkt umhverfi fyrir iðkendur við fyrsta flokks aðstæður.

Það er okkar trú að markviss æfing á tölvuleikjum í réttu umhverfi getur haft jákvæð áhrif á iðkendur.

Við biðjum forsjáraðila að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forsjáraðila og við skráningu er forsjáraðili að samþykkja að iðkandinn spili þá leiki sem eru í boði með ákveðnum foreldraeftirlits stillingum.

Æft er 2x í víku, 1,5 klst í senn. 20 iðkendur í hóp. 

Kennslustundir verða 90 mínútna langar og iðkendur eru um 20 talsins í hverjum hóp. Æfingar byrja á 20 mínútna fræðslu og upphitun sem felst í að liðka, teygja, tryggja góða líkamstöðu og koma í veg fyrir álagsmeiðsl. Síðan er spilað í 50 til 60 mínútur sem er gott viðmið þegar kemur að skjátíma.  

Rafíþróttadeild Breiðablik áskilur sér rétt til að breyta æfingatímum eða fella niður námskeið náist ekki lágmarks iðkendafjöldi.