Blikinn Elín Melgar Aðalheiðardóttir keppti á HM í bekkpressu bæði með og án búnaðar.
Í klassískri bekkpressu keppti hún í -69 kg flokki og lyfti þar 95 kg í fyrstu tilraun, hún reyndi svo tvisvar sinnum við 100 kg en þau fóru því miður ekki upp að sinni og skilaði henni 16. sæti í flokknum.
Nokkrum dögum síðar keppti hún í bekkpressu með búnaði, þá í -76 kg flokki. Þar opnaði hún á 122.5kg en fékk hana ógilda við að rekast í rekkann á leiðinni upp. Hún endurtók sömu þyngd í annarri tilraun sem gekk glæsilega og skilaði henni +2.5kg persónulegri bætingu. Í þriðju tilraun reyndi hún við 132.5 kg en tókst því miður ekki að lyfta henni. Þessi árangur skilaði henni 6. sæti í flokknum.
Til hamingju Elín með persónulegu bætinguna og árangurinn.