Íþróttaskóli Breiðabliks

er starfræktur á veturna í íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum og er markmið hans að bjóða börnum á aldrinum 18 mánaða til 5 ára upp á fjölbreytt og markvisst hreyfinám sem tekur mið af þroskaþáttum barna. Við komum til með að vinna á stöðvum með fjölbreyttu hreyfiálagi þar sem börnin hafa kost á að svala hreyfiþörf sinni í jákvæðu og hlýlegu umhverfi.

Það er mjög mikilvægt að okkar mati að börnin finni þörf til þess að hreyfa sig og að þeim líði vel inni í íþróttasalnum. Rannsóknir hafa líka sýnt fram á að staðgóð grunnþjálfun þar sem áhersla er lögð á alhliða líkams- og hreyfiþroska og jákvætt umhverfi hefur mjög mikla og jákvæða þýðingu fyrir einstaklinginn þegar fram í sækir. Íþróttaskólinn er tilvalinn vettvangur til þess að undirbúa börnin fyrir hinar hefðbundnu íþróttagreinar. Hlökkum til að sjá ykkur!


Smellið hér til að kaupa klippikort(gömul kort gilda líka áfram).

Í vetur, eins og síðasta vetur, verður notast við Sideline(XPS) kerfið til að borga/skrá og fylgjast með æfingum. Nánari upplýsingar varðandi notkun á kerfinu/appinu má sjá hér: https://breidablik.is/skraning-idkanda/

10 skipta kort kostar 16.500kr og 5 skipta kort kostar 9.000kr.

Forráðamenn sem keypt hafa 5 eða 10 skipta kort skulu sýna kvittun í fyrsta tíma og fá þá klippikortið afhent hjá starfsfólki íþróttaskólans.
Athugið: Mæta þarf með klippikortin í alla tímana (ef það gleymist þá er hægt að borga 1.900kr í posa á staðnum – sama verð gildir fyrir þá sem vilja prófa)
Klippikortin má alveg endilega nota fyrir fleiri en eitt barn.
Týnt/glatað kort fæst ekki bætt.


Mikilvægt að skrá barn í tímann því að hámarksgfjöldi er 90! Það er gert í XPS appinu en skráning opnar alltaf á miðvikudegi. Gott að mæta svo tímanlega til að forðast röð.

Laugardögum kl. 09:00 – 09:50 /// Börn fædd 2022, 2021 og þau sem hafa náð 18 mánaða aldri (2023)
Laugardögum kl. 10:00 – 10:50 /// Börn fædd 2020 og 2019

Hægt er að hafa samband í gegnum Facebook síðu skólans fyrir nánari upplýsingar og aðstoð til dæmis með skráningu í hvern tíma : Facebooksíða Íþróttaskóla Breiðabliks


Dagskrá* veturinn 2024-2025: 

28. sept – Smárinn

5. okt – Smárinn

12. okt – Smárinn

19. okt – Smárinn

26. okt – Smárinn

2. nóv – Smárinn

9. nóv – Smárinn

16. nóv – Smárinn

23. nóv – Kársnes

30. nóv – Kársnes

7. des – Smárinn

14. des – Smárinn

Jólafrí

4. jan – Smárinn

11. jan – Smárinn

18. jan – Smárinn

25. jan – Kársnes?

1. feb – Smárinn

8. feb – Smárinn

15. feb – Smárinn

22. feb – Smárinn

1. mars – Smárinn

8. mars – Smárinn

15. mars – Smárinn

22. mars  – Ratleikur við Kópavogstún

29. mars – Smárinn

5. apríl – Smárinn

 

 

 

 

 

 

*Dagskrá getur tekið breytingum