Markmið Breiðabliks
Yfirmarkmið
- Að vera í fararbroddi á öllum sviðum íþróttaþjálfunar á Íslandi.
- Að hjálpa iðkendum að eflast félagslega, á sál og líkama.
- Að hjálpa iðkendum og liðum Breiðabliks að hámarka íþróttalega færni og ná árangri á íþróttavellinum sem einstaklingar og sem lið.
- Að stuðla að betra og heilbrigðara samfélagi í Kópavogi.
Uppeldisleg markmið
- Að auka áhuga barna á og ungmenna á íþróttum almennt sem og heilbrigðum lífstíl.
- Að fylgjast með líðan og gengi iðkenda og sporna við brottfalli.
- Að efla hugarfar, félagsfærni og líkamsburði allra iðkenda svo að þeir geti náð árangri í þeim verkefnum sem þeir taka sér fyrir hendur í íþróttum sem og utan íþrótta.
Íþróttaleg markmið
- Að veita öllum iðkendum þjálfun, fræðslu og verkefni við hæfi – með það að markmiði að hjálpa öllum iðkendum að hámarka íþróttalega færni sína.
- Að stefna á að vera ávallt í fremstu röð í keppni, í efstu deildum og efstu sætum á innlendum sem og alþjóðlegum vettvangi.
- Að hlúa vel að þjálfurum og dómurum félagsins og hjálpa þeim að komast í fremstu röð með skipulegri fræðslu og endurmenntun.
- Að tryggja fyrirmyndar aðstöðu til íþróttaiðkunar, sem mætir auknum kröfum sívaxandi fjölda iðkenda, hvort sem litið er til aðstöðu til æfinga og keppni eða félagsstarfs.
Samfélagsleg markmið
- Að sinna víðþættu forvarnar- og uppbyggingarstarfi fyrir börn og ungmenni í Kópavogi – að þjónusta börn og ungmenni, foreldra og aðra íbúa Kópavogs með því að bjóða upp á öflugt og heilbrigt íþrótta- og forvarnarstarf.
- Að skapa spennandi vettvang fyrir fólk sem hefur áhuga á að vinna að félagsstörfum og vera kyndilberar Breiðabliks.
- Að útrýma hverfum í Kópavogi þar sem íþróttaþátttaka barna og ungmenna er minni en almennt gerist (svokölluðum „köldum svæðum“).
- Að gera Kópavog að enn betra, skemmtilegra og eftirsóknarverðara bæjarfélagi til að búa í eða að heimsækja.