Siðareglur Breiðabliks, leiðarljós í samskiptum iðkenda
- Gerir alltaf þitt besta, mætir á réttum tíma, virðir reglur og hefur heilbrigði að leiðarljósi.
- Ert til fyrirmyndar í framkomu, jafnt innan vallar sem utan.
- Sýnir öllum iðkendum virðingu, jafnt samherjum sem mótherjum, í meðbyr sem mótbyr.
- Forðast neikvætt umtal, niðurlægjandi köll eða skammir á vettvangi félagsins.
- Berð virðingu fyrir hæfileikum og getu annarra.
- Neytir aldrei ólöglegra lyfja til að bæta árangur þinn.
- Berð höfuðábyrgð á eigin framförum og þroska.
- Virðir ákvarðanir dómara og annars starfsfólks.
- Berð virðingu fyrir nafni og búningi félagsins.