Sumarnámskeið Breiðabliks 2024

Þegar búið er að skrá á námskeið þá er hægt að ná í appið hérna:

https://www.sidelinesports.com/downloads-athletes/

Hérna eru svo leiðbeiningar fyrir appið:

https://youtu.be/oEX2xk3uHDU

Allar spurningar varðandi skráningu/greiðslu skulu sendar á innheimta@breidablik.is

Yfirmaður sumarnámskeiða er Ágúst Unnar ( agustunnar1@gmail.com )

Í sumar býður Breiðablik upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 7 til 10 ára í Smáranum og Fagralundi ásamt því að bjóða uppá Rafíþróttanámskeið í Arena (Smáratorgi) fyrir 7 til 15 ára og sundnámskeið í Kópavogs– og Salalaug fyrir 4 til 10 ára börn.

Í Smáranum og Fagralundi eru námskeiðin frá kl. 9–12 og kl. 13–16, hægt verður að kaupa gæslu kl. 8-9, 16-17 og hádegismat(Smáranum) / gæslu kl. 12–13.

Rafíþróttanámskeiðin verða frá kl. 9-16 en einnig verður hægt að velja hálfs dags námskeið (kl. 9-12 eða 13-16). Svo verður hægt að kaupa gæslu kl. 12-13 og 16-17.

Sundnámskeiðin bjóða svo upp á margar tímasetningar yfir daginn þar sem hver tími er 45mín.

Sundnámskeiðin standa í 2 vikur(10 virka daga) á meðan öll önnur námskeið standa yfir í 1 viku(5 virka daga).

Boðið verður uppá eftirfarandi sumarnámskeið:

  • Ævintýranámskeið ( Smáranum og Fagralundi )
  • Frjálsíþróttanámskeið ( Smáranum )
  • Knattspyrnunámskeið ( Smáranum og Fagralundi )
  • Körfuboltanámskeið ( Smáranum )
  • Karatenámskeið ( Smáranum )
  • Skáknámskeið ( Smáranum )
  • Sundnámskeið ( Kópvogs – og Salalaug )
  • Rafíþróttanámskeið ( Arena Smáratorgi )

Staðsetning og tímatafla námskeiðanna:

SMÁRINN ( börn fædd 2014–2017)

10.-14.júní *18.–21.júní 24.–28.júní 01.–05.júlí *8.–11.júlí 15.–19.júlí 22.-26.júlí 27.júlí-11.ágúst 12.–16.ágúst
Smárinn
kl. 9–12
Skák
Frjálsar
Körfubolti
Skák
Frjálsar
Körfubolti
Skák
Frjálsar
Körfubolti
Skák
Frjálsar
Körfubolti
Skák
Frjálsar
Körfubolti
Skák
Frjálsar
Skák
Frjálsar
Frí Skák
Frjálsar
Smárinn
kl. 13–16
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Körfubolti
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Körfubolti
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Körfubolti
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Körfubolti
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Körfubolti
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra
Frí Fótbolti
Frjálsar
Ævintýra

*Fjögurra daga námskeiðsvika 8.-11. júlí því að Símamótisleikir hefjast á svæðinu að morgni föstudagsins 12. júlí

FAGRILUNDUR ( börn fædd 2014–2017)

10.-14.júní *18.–21.júní 24.–28.júní 01.–05.júlí *8.–11.júlí 15.–19.júlí 22.-26.júlí 27.júlí-11.ágúst 12.–16.ágúst
Fagrilundur
kl. 9–12
Ævintýra Ævintýra Ævintýra Ævintýra Ævintýra Körfubolti

Ævintýra

Körfubolti

Ævintýra

Frí Körfubolti

Ævintýra

Fagrilundur
kl. 13–16
Fótbolti Fótbolti Fótbolti Fótbolti Fótbolti Fótbolti Fótbolti Frí Fótbolti

*Fjögurra daga námskeiðsvika 8.-11. júlí því að Símamótisleikir hefjast á svæðinu að morgni föstudagsins 12. júlí

ARENA-SMÁRATORGI ( börn fædd 2009–2017)

10.-14.júní *18.–21.júní 24.–28.júní 01.–05.júlí 8.–12.júlí 15.–19.júlí 22.-26.júlí 27.júlí-11.ágúst 12.–16.ágúst
Arena
kl. 9–16/9-12/13-16
Rafíþróttir Rafíþróttir Rafíþróttir Rafíþróttir Rafíþróttir Rafíþróttir Rafíþróttir Frí Rafíþróttir
Verðskrá fyrir Smárann og Fagralund Öll verð miðast við 1 viku(5 virka daga)
Námskeið 1/2 dagur (3 klst) 8.400
Hádegismatur+gæsla (kl 12-13) 4.500 (Aðeins í boði í Smáranum)
Gæsla í 1 klst á dag (hægt að velja kl. 8-9, 12-13 og 16-17) 2.300
-Hægt er að búa til heilan dag með því að blanda saman tveimur námskeiðum og mat/gæslu
Verðskrá fyrir rafíþróttanámskeið Arena Smáratorgi Öll verð miðast við 1 viku(5 virka daga)
Námskeið 1/1 dagur (7 klst) 24.900
Námskeið 1/2 dagur (3 klst) 14.900
Gæsla í 1 klst á dag (hægt að velja kl. 8-9 og 16-17) 2.990
Verðskrá fyrir sundnámskeið (45 mín á dag í 2 vikur/10 daga) 19.000 (2 vikur – 10 virkir dagar)
Breytingargjald (ekki hægt að breyta eftir að fyrsti dagur rennur upp) 2.500

Allar spurningar varðandi skráningu/greiðslu skulu sendar á innheimta@breidablik.is

Almennar upplýsingar.

Gert er ráð fyrir að allir taki með sér hollt og gott nesti fyrir hvert 3 klst. námskeið, tvö nesti fyrir 6 klst námskeið.
EKKERT nesti má innihalda hnetur þar sem að börn með bráðaofnæmi gætu verið á meðal þátttakenda.
Mikilvægt er að iðkendur komi klæddir bæði fyrir inni- og útiveru enda er stefnan að fara aðeins út á hverjum degi nema veðurviðvörun sé á svæðinu.

Foreldrar/forsjáraðilar barna með stuðningsþarfir býðst að sækja um stuðning fyrir börn á námskeiðin og hvetjum við viðkomandi aðila að nýta sér það. Umsókn um stuðning
Félagið áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef þátttaka er dræm og einnig áskilur félagið sér rétt til þess að loka skráningu ef fjöldi fer yfir viðmið.
Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta dagskrá námskeiða eftir veðri og mætingu.

ATH. Ekki er tekið við börnum fyrr er 5 mínútum fyrir upphaf hvers námskeiðs – hægt er að kaupa gæslu fyrir þá sem þurfa að mæta fyrr með sín börn.
Í Smáranum og Fagralundi er mæting í íþróttasal húsanna þar sem leiðbeinendur taka á móti þeim.
Mikilvægt er að sækja börnin á réttum tíma og láta leiðbeinanda/starfsfólk vita að barnið sé sótt.

Lýsing á námskeiðum:

Á fótbolta-, frjálsíþrótta-, karate-, körfubolta-, sund- og skáknámskeiðum verða undirstöðuatriði greinanna kynnt fyrir iðkendum í bland við skemmtilega leiki sem henni tengjast.

Á ævintýranámskeiðunum verður farið í ýmislega leiki, íþróttir, göngutúra og jafnvel fjöruferðir svo eitthvað sé nefnt.

Sundnámskeið – Sunddeild Breiðabliks býður í sumar upp á sundnámskeið í Sundskóla Breiðabliks í júní og júlí. Líkt og áður sjá reyndir og traustir kennarar um kennsluna, ásamt aðstoðarfólki í laug. Aðstoðarfólkið fylgir börnunum í gegnum búnings- og baðklefa.

Allar fyrirspurnir varðandi námskeiðin sjálf skulu sendar á netfang sumarnámskeiða Breiðabliks.

Spurningar varðandi skráningu/greiðslu skulu hinsvegar sendar á innheimta@breidablik.is

Breiðablik – Dalsmári 5
Sími: 591-1100