Frístundaakstur Kópavogs haustönn hefst 2.sept 2024
ATHUGIÐ – Engin akstur á föstudögum.
Aðgangur að frístundavögnunum kostar 11.200kr á önn.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum íþróttafélögin Breiðablik(XPS), HK(Sportabler) og Gerplu(Sportabler).
Ef barn er hjá tveimur félögum þá er nóg að skrá sig í vagnana í gegnum eitt félag.
*engar endurgreiðslur eru framkvæmdar þegar meira en tvær vikur eru liðnar frá fyrsta akstursdegi á hvorri önn.
**alltaf skal greitt fullt verð fyrir akstursþjónustuna sama hversu seint á önninni þjónustan er keypt
Rauði bílinn S:621-4107 (Óskilamunir úr Rauða vagninum eru settir í Versali (Gerplu)
Græni bílinn S:621-4108 (Óskilamunir úr Græna vagninum eru settir í Kórinn (HK)
Hér má sjá myndir af óskilamunum úr Græna og Bláa bílnum sem er skilað í Kórinn: HK Kórinn Tapað/fundið NÝR HÓPUR!! | Facebook
Blái bílinn S:621-4120 (Óskilamunir úr Bláa vagninum eru settir í Kórinn (HK)
Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn komi upplýsingum til frístundaheimilanna eða skólans ef barnið þeirra á að taka bílinn á æfingu og þá hvaða lit og klukkan hvað. Starfsmenn frístundaheimilanna hafa verið duglegir að fylgja börnunum út á stoppustöð og þegar í bílinn er komið er það starfsmaður hans sem tekur við barninu og aðstoðar það við að fara út á réttum stað.
Bílarnir eru þrír og eru merktir með þremur mismunandi litum í framrúðunni. Þannig geta börnin þekkt sína rútu eftir litnum. Hver bíll fer tvær ferðir á dag. Ekki er gert ráð fyrir því að bíllinn aki börnunum til baka á frístundaheimilin að lokinn æfingu og eru börnin því á ábyrgð foreldra eftir að æfingu lýkur. Starfsmenn verða í bílunum til að aðstoða börnin við að fara á réttan æfingastað.
Fyrirspurnir varðandi frístundaaksturinn skulu sendar á arnordadi@breidablik.is
Ef heyra þarf beint í rútufyrirtækinu/bílstjórum þá skal haft samband við TREX.
Við hlökkum til að eiga gott samstarf og vonumst til að vagninn nýtist sem flestum í vetur.
ATH: Bílarnir eru ætlaðir börnum í 1. – 4. bekk.