Íslandsmeistaramótin í klassískri bekkpressu og bekkpressu með útbúnaði voru haldin á heimavelli í Digranesi sl. sunnudag.
Skráðir keppendur voru hátt í 80 og þó nokkur Íslandsmet slegin.
Heimamennirnir Kristrún Ingunn S. Sveinsdóttir og Alexander Örn Kárason tóku heim stigaverðlaun í opnum flokkum kvenna og karla í klassíkinni ásamt Íslandsmeistaratitlum í sínum þyngdarflokkum.
Heildarúrslit er að finna á kraft.is