Blikinn Júlía Kristín Jóhannesdóttir keppti í fyrstu sjöþraut tímabilsins og gerði sér lítið fyrir og bætti sinn persónulega árangur um rétt rúmlega 750 stig á móti í Bandaríkjunum um helgina, þar sem hún hlaut 5396 stig. Hennar besti árangur fyrir mótið var 4642 stig frá því á Norðurlandameistaramótinu í fjölþraut sem fram fór í Reykjavík um miðjan júní í fyrra. Á nýliðnu móti bætti Júlía Kristín sig í öllum greinum nema hástökki og óhætt að segja að okkar kona sé í hörkuformi og það verði spennandi að fylgjast með henni í sumar.