Hrafnhildur Hermannsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Breiðabliks. Hún er hjúkrunafræðingur að mennt en starfaði um árabil sem markaðsstjóri Eldum rétt þar sem hún sinnti fjölbreyttum verkefnum. Reynsla hennar og þekking af markaðsmálum mun nýtast félaginu afar vel og hlökkum við að fá hana til starfa. Hrafnhildur mun hefja störf á næstu dögum á skrifstofu félagsins.