Smáþjóðaleikarnir fara fram í Andorra dagana 26. maí til 31. maí og hefur íþrótta-og afreksnefnd FRÍ ásamt afreksstjóra FRÍ valið íslenska frjálsíþróttaliðið sem fer á Smáþjóðaleikana í ár. Við erum einstaklega stolt að eiga þrjá Blika sem keppa munu fyrir Íslands hönd á leikunum og einn þjálfara sem verður Blikunum og landsliðinu öllu innan handar á mótinu. Frá Breiðablik keppa þau Birna Kristín Kristjánsdóttir í langstökki, Karen Sif Ársælsdóttir í stangarstökki og Þorleifur Einar Leifsson í 110 m grindahlaupi og langstökki og þá fer Bjarki Rúnar Kristinsson yfirþjálfari frjálsíþróttadeildar Breiðabliks með hópnum til Andorra.
Við færum ykkur frekari fréttir þegar nær dregur og sendum Blikunum okkar og landsliðshópnum öllum okkar bestu kveðjur. 💚