Aðalfundur Breiðabliks fór fram á dögunum og venju samkvæmt voru veittar heiðursviðurkenningar til sjálfboðaliða og velunnara sem koma að starfi félagsins með einum eða öðrum hætti. Við erum einstaklega stolt að segja frá því að þrír einstaklingar úr frjálsíþróttadeild voru heiðraðir að þessu sinni en þau eru:
· Áslaug Pálsdóttir Ragnheiðardóttir, fyrrverandi formaður frjálsíþróttadeildar, hlaut viðurkenninguna Gullbliki og hlaut enn fremur silfurmerki UMSK
· Stefán Ragnar Jónsson, hlaut viðurkenninguna Gullbliki
· Jón Bjarni Bragason, hlaut viðurkenninguna Silfurbliki
Við óskum Ásu, Stebba og Jónba innilega til hamingju og erum einstaklega stolt og þakklát fyrir að hafa þau í okkar liði. 💚