Smáþjóðaleikarnir í Andorra eru í fullum gangi og strax á fyrsta degi frjálsíþróttakeppninnar gerðu okkar konur sér lítið fyrir og unnu til gull- og silfurverðlauna. Birna Kristín Kristjánsdóttir tryggði sér gullið í langstökki með stökki upp á 6,36 m og Karen Sif Ársælsdóttir landaði silfrinu í stangarstökki með stökki upp á 3,70 m. Við erum að rifna úr stolti yfir okkar konum og íslensku keppendunum og sendum góða strauma til Andorra.

Áfram Breiðablik og áfram Ísland!