Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram á ÍR vellinum dagana 14.-15. júní og til allrar hamingju voru veðurguðirnir með okkur í liði sem gerði upplifun keppenda, áhorfenda og sjálfboðaliða einstaklega góða. Ungu Blikarnir okkar eru á fljúgandi siglingu svona í upphafi sumars og var mikið um persónulegar bætingar hjá hópnum okkar. Blikarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu til alls 29 verðlauna og þá erum við sérstaklega stolt að segja frá því að hvorki fleiri né færri en þrír Blikar settu mótsmet um helgina.
- Elenóra Ósk Bjarnadóttir setti mótsmet í 2000 m hlaupi 13 ára stúlkna þegar hún hljóp á tímanum 8:01,19.
- Ernir Páll Kristjánsson setti mótsmet í 2000 m hlaupi 13 ára pilta þegar hann hljóp á tímanum 6:59,21.
- Eyrún Svala Gustavsdóttir setti mótsmet í hástökki 14 ára stúlkna þegar hún stökk yfir 1,58 m.
Þá urðu 13 ára Blikastrákar og 14 ára Blikastelpur Íslandsmeistarar í sínum aldursflokkum og endaði Breiðablik í 4. sæti í heildarstigakeppni félagsliða en það voru vinir okkar ÍR-ingar sem unnu stigakeppnina.
Við þökkum Blikunum okkar bestu fyrir frábæra MÍ helgi og óskum öllum til hamingju með frábært mót. Næst á dagskrá er svo MÍ 15-22 ára 21.-22. júní og hvetjum við alla sem geta til að mæta á ÍR völlinn og hvetja frjálsíþróttafólkið okkar til dáða.
Áfram frjálsar – áfram Breiðablik!