Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram á ÍR vellinum í Breiðholti dagana 20.-22. júní og af um 200 keppendum á mótinu átti Breiðablik 23 fulltrúa. Blikarnir okkar voru í banastuði eins og svo oft áður og var mikið um persónulegar bætingar hjá hópnum við allskonar veðuraðstæður eins og búast má við á Íslandi. Alls unnu Blikarnir 16 gull, 7 silfur og 6 brons eða 29 verðlaun í heildina sem er ekkert annað en stórkostlegur árangur hjá okkar fólki og óskum við hópnum öllum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.

Næsta mál á dagskrá er mikilvægasta landliðsverkefni ársins, sjálfur Evrópubikarinn 24.-25. júní en þar keppir Ísland í 3. deild í ár ásamt 14 öðrum landsliðum. Íslenska liðið samanstendur af 33 íþróttamönnum og í þeim hópi eru fjórir Blikar, en það eru þau Birna Kristín Kristjánsdóttir, Júlía Kristín Jóhannesdóttir, Karen Sif Ársælsdóttir og Þorleifur Einar Leifsson. Við sendum landsliðshópnum góða strauma fyrir komandi keppni og hlökkum til að fylgjast.

Áfram Ísland!