Viltu gera einhvað skemmtilegt og fjölbreytt í sumarfríinu þínu?
Þá hefur þú möguleika á því að taka þátt í þessu skemmtilega og fjölbreytta sumarnámskeiði sem inniheldur þrjár íþróttagreinar á einu námskeiði með öðrum unglingum og vinum.
Þegar þessar þrjár greinar eru settar saman kallast íþróttin þríþraut. 🏊🏻🚴🏼♀️🏃🏽♂️
Þríþrautardeild Breiðabliks og Þríþrautarsamband Íslands munu setja saman fjölbreytt og skemmtilegt viku námskeið fyrir þig, þannig að þú getir kynnist þríþraut betur í heild sinni.
Markmiðið með þessu námskeiði er að gefa þér góða upplifun og reynslu af þríþraut með æfingum í sundi, hjólreiðum og hlaupi sem hentar hverjum og einum óháð getu og fyrri reynslu, ásamt æfingum í skiptingum á milli greinanna.
Upplýsingar ℹ️
Aldurshópur: 10-13 ára (2012-2015) og 14-16 ára (2009-2011)
Dagsetning: 10.-13. júní 2025.
Tímasetning: 9:00-12:00 á hverjum degi.
Staðsetning: Félagssvæði Breiðabliks og Sundlaug Kópavogs. Nánari mætingarstaðir verða kynntir eftir skráningu.
Heildardagskrá og nánari upplýsingar verða send til þín með góðum fyrirvara.
Skráning
Skráning fer fram í gegnum eftirfarandi QR-kóða …
… eða hlekkinn: https://forms.office.com/e/aMhwhz53wX
Þátttökugjald: 8400 kr.
Greiðsluupplýsingar verða sendar eftir skráningarfrestinn.
Heildardagskrá og nánari upplýsingar verða send til þín með góðum fyrirvara.
Skráningarfrestur: 06.06. 2025 🏁
Námskeiðið er haldið af þríþrautardeild Breiðabliks og Þríþrautarsambandi Íslands.