Merki Breiðabliks

Merki Breiðabliks er alltaf notað með hvítum ramma þegar það liggur ofan á dökkum grunni.

Vector útgáfa: breidablik_PDF
Litir merkisins:

Grænn sérlitur fyrir prent Pantone: 336
CMYK prentlitur 100c.  0m.  65y.  30,5k
Rauður sérlitur fyrir prent Pantone 1795
CMYK prentlitur 0c.  100m  100y.  0k
RGB litir  (fyrir vefinn)
grænt 12  105.  85
rautt  206   55.  40

 

Breiðablik eignaðist sitt eigið merki árið 1967 og höfundur þess var Ingvi H. Magnússon. Núverandi merki félagsins sem byggt var á eldra merkinu var tekið í notkun árið 1994 eftir lokaða hugmyndasamkeppni.  Sigurvegari var H:N markaðssamskipti og höfundar voru Fanney Valgarðsdóttir og Ólöf Þorvaldsdóttir. Í greinargerð H:N Markaðssamskipta, sem er er með höfundarrétt á merkinu, segir að vísað sé í sé í skjaldarflötinn eins og áður og kyndilinn sem tákn eldhuga og hugsjóna – með nútímalegri og aðgengilegri útfærslu.

Sérstök áhersla var lögð á að fullt heiti félagsins Breiðablik kæmi fram í merkinu þar sem áður var UBK. Það olli nokkrum heilabrotum en tókst með nákvæmu leturvali. Flestir ef ekki allir Blikar eru sammála að einstaklega vel hafi tekist til varðandi útlit og hönnun á nýju merki Breiðabliks.

 

Reglugerð um merki Breiðabliks
1. gr. Merki Breiðabliks er eign félagsins og verndað að vörumerkjarétti. Markmið reglna þessara er að tryggja að samræmi sé í notkun merkis félagsins og að koma í veg fyrir misnotkun þess.

2. gr.
 Merkinu er ætlað að vera hluti af ímynd félagsins bæði inn á við og út á við. Þannig er merkinu ætlað að stuðla að samstöðu milli deilda og félagsmanna.
Merkið skal notað og borið þannig að ekki sé varpað rýrð á það.
Óheimilt er með öllu að nota eða láta gera skrumskældar útgáfur merkisins.

3. gr.
 Allir keppnis- og æfingabúningar á vegum félagsins skulu bera merki félagsins í samræmi við eftirfarandi ákvæði.

4. gr.
 Merki félagsins er hvítur kyndill með rauðum loga á grænum grunni. Fyrir neðan miðju kyndilsins er letrað BREIÐABLIK. Aðallitur keppnis- og æfingabúninga félagsins er grænn

5.gr.
 Merkið skal staðsett á vinstra brjósti bæði á keppnis- og æfingagöllum eða í samræmi við reglur sérsambands um félagsmerki ef þær kveða á um annað.

6. gr.
 Óheimilt er að nota merki félagsins í hvers konar atvinnuskyni eða auglýsingar án samþykki framkvæmdarstjóra félagsins.

7. gr.
 Merki félagsins skal birt á heimasíðu félagsins í öllum helstu formötum.

8. gr.
 Hver íþróttadeild skal fá samþykki aðalstjórnar félagsins á búningi sínum.

9. gr.
 Framkvæmdastjóri félagsins getur heimilað frávik frá reglum þessum í samræmi við hefðir sem skapast hafa í samskiptum félaga í viðkomandi keppnisgreinum. Þetta á sérstaklega við þegar litagrunnur æfinga eða keppnisgalla er óheppilegur fyrir merkið í sinni réttu mynd.

10. gr.
 Aðalstjórn Breiðabliks. er heimilt að láta framleiða vörur með merkinu, sem félagsmenn og aðrir geta keypt, svo sem barmmerki, bindisnælur, borðfána, penna o.s.frv. Framkvæmdastjóri getur heimilað deildum félagsins slíka framleiðslu.

11. gr.
 Aðalstjórn Breiðabliks er heimilt að takmarka og jafnvel banna einstökum deildum eða einstaklingum notkun merkisins ef notkun þeirra á því samrýmist ekki ákvæðum reglna þessara og ekki er orðið við tilmælum um úrbætur.

12. gr.
 Framanskráðar reglur má ekki skoða sem tæmandi um notkun og meðferð merkisins.