Frístundabíllinn mun hefja akstur mánudaginn 2.september. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn komi upplýsingum til frístundaheimilanna eða skólans ef barnið þeirra á að taka bílinn á æfingu og þá hvaða lit og klukkan hvað. Starfsmenn frístundaheimilanna hafa verið duglegir að fylgja börnunum út á stoppustöð og þegar í bílinn er komið er það starfsmaður hans sem tekur við barninu og aðstoðar það við að fara út á réttum stað.

Samið hefur verið við fyrirtækið Hópbílar til að sjá um aksturinn í vetur. Bílarnir eru þrír og eru merktir með þremur mismunandi litum í framrúðunni. Þannig geta börnin þekkt sína rútu eftir litnum. Hver bíll fer tvær ferðir á dag. Ekki er gert ráð fyrir því að bíllinn aki börnunum til baka á frístundaheimilin að lokinn æfingu og eru börnin því á ábyrgð foreldra eftir að æfingu lýkur. Starfsmenn verða í bílunum til að aðstoða börnin við að fara á réttan æfingastað.

Starfsmaður SÍK (samráðsvettvangs íþróttafélaganna í Kópavogi) mun hafa umsjón með bílunum og vera tengiliður við Hópbíla frá degi til dags. Ef ykkur vantar frekari upplýsingar um frístundabílinn skal beina spurningum á netfangið sik@kopavogur.is

Við hlökkum til að eiga gott samstarf og vonumst til að vagninn nýtist sem flestum í vetur.