Kæru foreldrar/forráðamenn!

Í ljósi blaðamannafundar sem er nýlokið að þá er í skoðun hvernig íþróttafélögin Breiðablik, Gerpla og HK útfæra það sem kom fram á fundinum m.t.t. æfinga ofl.

Upplýsingar verða sendar strax út þegar við vitum meira og nánari fyrirmæli hafa verið gefin út af íþróttahreyfingunni sem og Kópavogsbæ.

Við biðjum foreldra/forráðamenn að sýna því skilning á meðan farið er yfir stöðuna sem upp er komin.

Allar æfingar halda sér fram að samkomubanninu sem tekur gildi aðfaranótt mánudagsins en það er undir hverjum og einum foreldri/forráðamanni komið að senda sín börn til æfingar.

F.h. Breiðablik, HK og Gerplu

Eysteinn Pétur Lárusson frkv.stjóri Breiðabliks

Hanna Carla Jóhannsdóttir frkv.stjóri HK

Olga Bjarnadóttir frkv.stjóri Gerplu