Flottir blikar á Bikarmóti KAÍ

Í gær laugardaginn 17.mars fóru fram önnur bikarmót ársins á vegum Karatesambandsins. Að venju átti Breiðablik nokkra fulltrúa, stóðu þau sig mjög vel og sýndu framför í sínum tæknum.

Um morguninn fór fram bikarmótið þar sem keppt er í opnum flokkum karla og kvenna, bæði í kata og kumite, við áttum keppendur í báðum flokkum og má sjá árangurinn hér fyrir neðan.

2.Bikarmót 2018

Kata kvenna
2.sæti Laufey Lind Sigþórsdóttir McClure
3.sæti Arna Katrín Kristinsdóttir
3.sæti Móey María Sigþórsdóttir McClure
5.sæti Guðbjörg Birta Sigurðardóttir

Kata Karla
3.sæti Jóhannes Felix Jóhannesson

Kumite kvenna
3.sæti Arna Katrín Kristinsdóttir

Á meðfylgjandi mynd má sjá keppnishóp okkar, frá vinstri Jóhannes, Guðbjörg, Laufey, Móey og Arna.

Eftir hádegi fór svo fram GrandPrix bikarmót fyrir unglinga, þar sem keppendur eru á aldrinum 12-17 ára, keppt bæði í kata og kumite, skipt í mismunandi aldursflokka. Okkar keppendur stóðu sig að vanda mjög vel og var árangurinn flottur eins og sjá má hér að neðan.

1.GrandPrix-bikarmót 2018

Kata 12ára pilta
3.sæti Guðjón Daníel Bjarnason
5.sæti Birgir Gauti Kristjánsson
7.sæti Baldvin Ísleifur Óskarsson

Kata 12ára stúlkna
3.sæti Salka Finnsdóttir

Kata 13ára pilta
1.sæti Samúel Týr Sigþórsson McClure
5.sæti Skarphéðinn Nói Helgason

Kata 14-15ára pilta
1.sæti Tómas Pálmar Tómasson
2.sæti Tómas Aron Gíslason

Kata 16-17ára stúlkna
1.sæti Móey María Sigþórsdóttir McClure

Kumite 12ára pilta
5.sæti Birgir Gauti Kristjánsson

Kumite 13ára pilta
7.sæti Samúel Týr Sigþórsson McClure

Kumite 15ára pilta
2.sæti Tómas Aron Gíslason

Kumite 16-17ára stúlkna
2. sæti Móey María Sigþórsdóttir McClure

Á meðfylgjandi mynd má sjá keppnishópinn okkar á GrandPrix mótinu, aftari röð frá vinstri; Móey María, Tómas Aron, Tómas Pálmar, Skarphéðinn Nói og Helgi þjálfari. Neðri röð frá vinstri; Salka, Birgir Gauti, Baldvin Ísleifur, Guðjón Daníel og Samúel Týr.