Á mánudagskvöldið síðastliðið var haldin móttökuhátíð fyrir nýjasta stórmeistara landsins, Vigni Vatnar Stefánsson.
Hátíðin fór fram á heimavelli Vignis í glersal Stúkunnar og voru þar samankomnir iðkendur, þjálfarar og stjórnarmeðlimir úr skákdeild Breiðabliks ásamt fulltrúum úr aðalstjórn Breiðabliks og bæjarstjóra Kópavogs.
Eins og fram kom í síðustu viku þá varð Vignir sextándi stórmeistari Íslands í skák en áfanganum náði hann á móti í Serbíu.
Áfanginn skiptist í þrjú þrep og hafði Vignir lokið fyrstu tveimur þrepunum á síðasta ári.
Þess má geta að Vignir er einungis nýorðinn tvítugur og því óhætt að segja að framtíðin sé virkilega björt.
Innilega til hamingju Vignir!
- Meðlimir úr skákdeild Breiðabliks heiðruðu Vigni við heimkomuna.
- Glæsileg og gómsætt kaka sem sýnir stöðuna þegar Vignir tryggði sér stórmeistaratitilinn
- Vignir ásamt móður sinni
- Vignir ásamt Helga Ólafssyni – tveir stórmeistarar
- Vignir ásamt vinum sínum
- Vignir ásamt Ásgeiri formanni Breiðabliks og Ásdísi bæjarstýru Kópavogs