Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Formaður leggur fram skýrslu deildarinnar
- Ársreikningur staðfestur af skoðunarmönnum lagður fram til samþykktar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Umræður um málefni deildarinnar og önnur mál
Allir félagsmenn skákdeildar, 18 ára og eldri eru kjörgengir og geta boðið sig fram til setu í stjórn eða ráðum.
Skriflegu framboði skal skila til framkvæmdastjóra félagsins að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi kl. 19:00 miðvikudaginn 3. apríl 2024.
Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is
Við hvetjum alla áhugasama um að hafa samband og gefa sig fram til að taka þátt skemmtilegu starfi innan deildarinnar.