Stjórn Þríþrautardeildar Breiðabliks boðar til aðalfundar fimmtudaginn 11. apríl kl. 19:30 í stúku Breiðabliks, miðhæð.
Framkvæmd og dagskrá fundarins er skv. lögum Breiðabliks og er svohljóðandi:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Formaður leggur fram skýrslu deildar
- Ársreikningur staðfestur af skoðunarmönnum lagður fram til samþykktar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Umræða um málefni deildar og önnur mál.
Rétt til setu á fundinum eiga allir félagsmenn Þríþrautardeildarinnar og eru þeir hvattir til að fjölmenna. Framboði til stjórnar skal skila að lágmarki viku fyrir fundinn.