KSÍ býður öllum stelpum á Símamótinu á stórleik Íslands og Þýskalands í dag klukkan 16:15.  Armbandið dugar sem aðgöngumiði.

Til að allar stelpurnar komist á leikinn var ákveðið að stytta alla leiki í 5. og 6. flokki á föstudegi í 2×10 mínútur.  Mótið klárast því klukkan 16 í dag.

Leiktími á laugardag og sunnudag er síðan eins og venjulega, 2×12 mínútur. Einn liðstjóri fær að fylgja hverju liðu og miði fylgdi með mótsgjöf.