Þessa dagana er verið að fínpússa vetrarstarf félagsins.

Einhverjar deildir eru nú þegar farnar af stað en flestar fara af stað í næsta mánuði.

Smellið hér til að sjá stöðuna í hverri deild.

Athugið líka að starfið kann að raskast í september sökum mikilla framkvæmda á svæðinu og stórra viðburða.

Fífan verður t.a.m. lokuð 4.-23.september og Smárinn 13.-22.sept vegna sjávarútvegssýningar, 3.-8.september fer fram fjögurra liða evrópukeppni á Kópavogsvelli og loks munu framkvæmdir við nýjan gervigrasvöll við hlið Fífunnar standa yfir næstu vikurnar.

Förum varlega innan um vinnusvæðin og sýnum öllum skilning sem eru að læra á nýja vetrardagskrá bæði í leik, námi og starfi. 💚