Laugardaginn 17. ágúst fóru Bikarkeppnir FRÍ fram á Kópavogsvelli og var bæði keppt í flokki 15 ára og yngri og fullorðinna. Keppnin fór vel fram og sérstaklega gaman að sjá hve mörg lið voru mætt til leiks í ár. Aðalheiður María Vigfúsdóttir, Silfurbliki með meiru, þríbætti Íslandmetið sitt í sleggjukasti í flokki öldunga 40-44 ára og náði 3. sæti með kasti upp á 39,70 m sem er rúmlega metra lengra en Íslandsmetið hennar í flokki 35-39 ára. Þetta var í 21. skiptið sem Aðalheiður keppti í Bikarkeppni FRÍ og alls hefur hún keppt í níu ólíkum greinum gegnum árin en hinar greinarnar eru kúla, kringla, sleggja, spjót, þrístökk, hástökk, stangarstökk, 100 m grind og 400 m grind. Þetta sýnir og sannar að frjálsar eru fyrir fólk á öllum aldri og vonum við innilega að ungu Blikarnir okkar muni feta í sömu fótspor og halda áfram á sömu braut næstu árin og áratugina. Í heildina unnu Blikar til 14 verðlauna í bikar 15 ára og yngri og 9 verðlauna í bikar fullorðinna og óskum við okkar fólki innilega til hamingju. Heildarúrslit og skiptingu verðlauna má sem fyrr finna á vefsíðunni mot.fri.is