Stelpurnar okkar urðu í dag Íslandsmeistarar í fótbolta eftir æsispennandi lokaleik á Hlíðarenda!

Fyrir leikinn voru stelpurnar efstar í deildinni með einu stigi meira en Valur og því um hreinan úrslitaleik að ræða.

0-0 jafntefli varð niðurstaðan sem dugði Blikunum og brutust út gífurleg fagnaðarlæti þegar lokaflautið gall.

Stelpurnar fengu ekki bara flest stig í deildinni heldur skoruðu þær einnig mest og fengu á sig fæst mörk, því er titillinn fyllilega verðskuldaður!

Innilega til hamingju stelpur og allt starfsliðið með stórkostlegan árangur.