Birna Kristín Kristjánsdóttir og Þorleifur Einar Leifsson eru frjálsíþróttafólk Breiðabliks 2024.
Uppskeruhátíð Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks fór fram þann 3. janúar og við það tilefni var frjálsíþróttafólk ársins heiðrað sérstaklega. Birna Kristín Kristjánsdóttir er frjálsíþróttakona ársins og Þorleifur Einar er frjálsíþróttamaður ársins og óskum við þeim innilega til hamingju með verðskuldaða titla.
Birna var valin í nokkur landsliðsverkefni á árinu 2024 og keppti fyrir hönd Íslands á Norðurlandameistaramóti í frjálsum sem fram fór í Malmö um miðjan maí. Hún var einnig valin til að keppa á Smáþjóðaleikunum á Gíbraltar, þar sem hún varð smáþjóðameistari í langstökki þegar hún setti mótsmet með risa stökki upp á 6,46 m en stökkið var jafnframt Íslands- og aldursflokkamet í flokki 23 ára og yngri. Gamla metið var frá 2012 og hljóðaði upp á 6,27 m sem þýðir að Birna Kristín bætti metið um heila 19 cm og er stökkið jafnframt næst lengsta stökk íslenskrar konu frá upphafi! Birna varð Bikarmeistari í langstökki innanhúss og í 2. sæti í bikarkeppninni utanhúss. Birna varð í 2. sæti í langstökki á Meistaramóti Íslands í lok júní þegar hún stökk 6,31 m, þar sem aðeins einn cm skildi að fyrstu tvö sætin. Birna endaði árið svo vel á Áramóti Fjölnis, þar sem hún setti persónulegt með í 60m hlaupi og Íslandsmet í langstökki innanhúss í flokki U23 með stökk upp á 6,15m.
Til að setja stökkið hennar Birnu upp á 6,46 m í samhengi, þá var 31 ein kona sem tók þátt í Ólympíuleikunum síðasta sumar og af þeim komust 12 í úrslit. Ef Birna hefði stokkið þetta stökk á Ólympíuleikunum, þá hefði hún endað í 12. sæti.
Þorleifur byrjaði árið einstaklega vel og gerði sér lítið fyrir og tók gullið í langstökki á RIG, Reykjavík International Games, með risa bætingu og stökki upp á 7,09 m. Hann varð einnig Íslandsmeistari í langstökki á MÍ innanhúss í febrúar með stökki upp á 6,75 m og Íslandsmeistari í 60 m grindahlaupi á tímanum 8,29 sek. sem var jafnframt persónulegt met. Þorleifur varð í 2. sæti í 110 m grind á Meistaramóti Íslands utanhúss í lok júní þegar hann hljóp á tímanum 15,77 sek.
Þorleifur hlaut titilinn fjölþrautakarl ársins á uppskeruhátíð FRÍ í byrjun desember en hann varð Íslandsmeistari í sjöþraut innanhúss þar sem hann fékk 5182 stig. Þorleifur tryggði sér keppnisrétt á NM í þraut í sumar en gat ekki keppt vegna meiðsla. Líkt og Birna, endaði Þorleifur árið með stæl og setti bætti sig talsvert í 60m hlaupi á Áramóti Fjölnis er hann hljóp á tímanum 7,10 sek.