Uppskeruhátíð frjálsíþróttadeildar Breiðabliks fyrir árið 2024 fór fram 3. janúar og þar komu iðkendur, foreldrar, þjálfarar og vinir deildarinnar saman til að fagna frábærum árangri á árinu og eiga góða og gleðilega stund saman.
Árið var gott hjá frjálsíþróttafólki Breiðabliks og óhætt að segja að framtíðin sé björt. Góðan árangur Breiðabliks í frjálsum íþróttum má sjá víða hvort sem það er á topp 100 listanum yfir besta árangur ársins 2024, í fjölda Íslandsmeistaratitla og Íslandsmeta, með þátttöku í landsliðsverkefnum og útnefningum í unglingalandsliðshóp FRÍ. Mikið var um bætingar og persónuleg met hjá stórum hópi iðkenda okkar og gaman að sjá íþróttafólkið okkar vaxa og dafna innan vallar sem utan.
Að þessu sinni voru veitt sex verðlaun í flokki framfaraverðlauna unglinga, frjálsíþróttaunglinga og frjálsíþróttafólks Breiðabliks og þá var sérstaklega klappað fyrir þeim fjórum unglingum sem náð hafa lágmörkum fyrir unglingalandslið FRÍ.
Viðurkenningar ársins hlutu:
13-16 ára
- Frjálsíþróttaunglingar Breiðabliks: Samúel Örn Sigurvinsson og Sóley Sigursteinsdóttir
- Framfaraverðlaun unglinga: Ester Mía Árnadóttir og Óðinn Egilsson
17 ára og eldri
- Frjálsíþróttafólk Breiðabliks: Birna Kristín Kristjánsdóttir og Þorleifur Einar Leifsson
Við erum einstaklega stolt af okkar frábæra íþróttafólki og óskum þeim öllum innilega til hamingju með afrek ársins og hlökkum til að fylgjast með þeim takast á við ný og spennandi verkefni á komandi misserum. 💚