Frjálsíþróttahluti Reykjavíkurleikanna fór fram í Laugardalshöllinni mánudagskvöldið 27. janúar og óhætt að segja að um sannkallaða frjálsíþróttaveislu hafi verið að ræða. Átta Blikar unnu sér inn þátttökurétt á mótinu og hafa svo sannarlega stimplað sig inn í hóp fremsta frjálsíþróttafólks landsins. Blikarnir gerðu sér svo lítið fyrir og unnu til fjögurra verðlauna á mótinu en um harða og spennandi keppni var að ræða í öllum greinum.
Þorleifur Einar Leifsson vann gullverðlaun í langstökki með stökki upp á 6,97 m og er það lengsta stökk hans á tímabilinu. Patrekur Ómar Haraldsson vann gullverðlaun í 800m U18 ára pilta á nýju persónulegu meti þegar hann hljóp á tímanum 2:00,83. Eyrún Svala Gustavsdóttir gerði sér svo lítið fyrir og vann til verðlauna í tveimur greinum og setti um leið persónuleg met í þeim báðum. Eyrún vann silfurverðlaun í 800m U18 ára stúlkna á tímanum 2:28,67 og brons í 60m U16 ára stúlkna á tímanum 8,44.
Við óskum verðlaunahöfum og Blikunum öllum innilega til hamingju með gott mót og viljum um leið þakka sjálfboðaliðum fyrir sitt framlag því án þeirra væru viðburðir sem þessir ekki mögulegir.
Öll úrslit má finna á vefsíðunni mot.fri.is